er stjórnstöðÍ stað þess að geyma gögnin þín í möppum, tölvuskjölum og útprentuðum blöðum, heldur Metta utan um daglegt eftirlit, hitastig og atvik, og skráir sjálfkrafa hver gerði hvað og hvenær. Allt rekjanlegt, skýrt og öruggt.
Spjall án skuldbindinga · Uppsetning og kennsla innifalin · Uppsett hjá þér innan 14 daga frá pöntun
Daglegt, vikulegt og mánaðarlegt eftirlit á einum stað. Skráðu hitamælingar, hreingerningar og öryggisatriði á kerfisbundinn hátt og hafðu alltaf yfirsýn yfir hvað er lokið og hvað bíður.


Kælir 2 mælist +6,2°C, efri mörk +4,0°C
SMS og tölvupóstur á vaktstjóra, strax
INC-2026-0418 fer í úrlausnarferli
Rauntímavöktun á hitastigi kæla, frysta og eldhúsbúnaðar. Stilltu viðmiðsmörk fyrir hvern skynjara, fáðu tilkynningu um leið og hitastig fer út fyrir mörk og búðu til útflutningshæf hitastigsskjöl tilbúin til eftirlitsskoðunar.
Þegar eitthvað fer úrskeiðis, hvort sem það er óhapp starfsmanns, hitastig utan marka eða gátlisti sem náðist ekki að klára, þá er það skráð á einum stað með fullri sögu. Þegar úttektarmaður spyr hvað gerðist og hvernig það var leyst er svarið alltaf til staðar, ekki í minni einhvers sem er hættur.

Bókaðu 30 mínútna kynningarfund með okkur og við finnum út í sameiningu hvaða leiðir henta best fyrir þitt eldhús. Metta er til þjónustu reiðubúin.

Öll hreinsiefni og íðefni eldhússins á einum stað, með hættumerkjum, öryggisblöðum og leiðbeiningum um meðhöndlun og skyndihjálp. Þegar úttektarmaður biður um öryggisblað fyrir tiltekið efni er það til staðar strax, ekki týnt í skúffu eða á úreltu formi.
Kortleggðu hætturnar í eldhúsinu á kerfisbundinn hátt, allt frá hráefnamóttöku til framreiðslu, og gefðu mat á hverja þeirra út frá líkum og alvarleika. Tengdu svo mestu áhætturnar beint við gátlistana og hitamælingarnar sem vakta þær, þannig að eftirlitið verður sjálfvirkt.

Líkur 4 x alvarleiki 4 = 16, áhættan tengd við gátlista og hitamælingar
metta | vakt er þráðlaus skynjarafloti sem vaktar hitastig í kælum og frystum hjá þér, allan sólarhringinn. Þú kaupir engan búnað, þú leigir hann hjá okkur. Við sendum tækin tilbúin og merkt fyrir hvert svæði, þú kemur þeim einfaldlega fyrir á sína staði og þau byrja strax að skrá hitastig beint inn í Mettu. Bilun í kæli getur eyðilagt hráefni fyrir hundruð þúsunda á einni nóttu, og með sjálfvirkri vöktun grípurðu vandann áður en hann verður að tjóni. Á sama tíma byggirðu upp samfellda, vottaða mæliskrá sem sannar að kælikeðjan hafi haldist í lagi.
Þráðlaus hitamæling fyrir kæliherbergi, frysta og geymslur. Aftengjanlegur nemi mælir frá -50°C upp í +105°C með ±0,5°C nákvæmni.
Sama nákvæmni og hitaneminn en með LCD skjá svo starfsfólk les hitastigið beint af tækinu. Styður líka hurðanema samhliða.
Mælir hita og raka og skráir um leið hvenær kæliherbergi eða frystir er opnaður. Sendir viðvörun ef hurð stendur opin of lengi.
Ein gateway tekur við gögnum frá öllum skynjurum hússins og kemur þeim í kerfið. Við stillum búnaðinn og sendum hann tilbúinn til þín (Plug and Play).
50% afsláttur af öllum skynjurum umfram þrjá. Fyrstu þrír á fullu verði.
metta | vakt er eingöngu fáanlegt sem viðbót við hugbúnaðarpakka. Sjálfvirk hitavöktun er fáanleg með öllum pökkum, einnig metta | grunnur.
Þrír pakkar sem vaxa með rekstrinum, frá grunneftirliti upp í fulla stjórnun á mörgum staðsetningum. Við förum yfir þarfirnar með þér, stillum kerfið upp og þjálfum starfsfólkið. Hafðu samband og við finnum réttu lausnina saman.
Allt sem þarf til að uppfylla kröfur MAST og Vinnueftirlits um stafrænt innra eftirlit. Hentar minni eldhúsum og þeim sem vilja koma pappírslausu eftirliti í gang á einfaldan hátt. Stendur fyllilega sjálfstætt sem löglegur gæðarekstur.
Bættu við sjálfvirkri hitavöktun með metta | vakt hvenær sem er.
Fullbúið gæðakerfi með áhættumati og fullum rekjanleika. Fyrir eldhús sem vilja virkt eftirlit og vera alltaf tilbúin fyrir úttekt. Þetta er pakkinn sem hentar flestum atvinnueldhúsum og stóreldhúsum.
Heildstætt rekstrarkerfi fyrir stærri rekstur og fjölstaða starfsemi. Bætir matseðlum, máltíðaskráningu og fullri rekstrarstýringu ofan á gæðakerfið, svo öll starfsemin er á einum stað með yfirsýn yfir allar staðsetningar.
Verð fer eftir staðsetningum og starfsmannafjölda. Innleiðingargjald er eingreiðsla á starfsstöð og innifelur uppsetningu, grunnstillingar, innflutning gagna og þjálfun starfsfólks á staðnum eða í fjarfundi. Hafðu samband fyrir verðtilboð sniðið að þínum rekstri. Útgáfutilboð: 50% afsláttur af innleiðingargjaldi fyrir samninga sem undirritaðir eru til og með 31. desember 2026.
Við setjum kerfið upp, flytjum gögnin þín og þjálfum starfsfólkið. Uppsett hjá þér innan 14 daga frá pöntun og það kostar ekkert að prófa.
Við sýnum þér kerfið í gangi, sniðið að þínu eldhúsi, og svörum öllum spurningum. Engar skuldbindingar.
Innan eins virks dags frá fyrirspurn.
Sniðin að þínu eldhúsi, þér að kostnaðarlausu.
Innan 14 daga frá pöntun, með kennslu fyrir starfsfólkið.
Fylltu út og við höfum samband innan eins virks dags.
Upplýsingarnar þínar fara ekki lengra. Engar skuldbindingar.
Við höfum samband innan eins virks dags.